Harry Potter dagurinn

Miðvikudaginn 31. júlí á Harry Potter afmæli og því ber að fagna!

 

Við bjóðum upp á töfrandi ratleik um allt safnið með spennandi þrautum og skreytingum úr galdraheiminum.

Flokkunarathöfn og leit í Hólfi Bókasafnsins er einungis brot af því sem verður í boði!

 

Ratleikurinn hefst kl. 13.00 og mun standa yfir til 16.00.

 

Við hlökkum til þess að sjá sem flesta og hvetjum fólk til þess að mæta í búningi!

 

Allt galdrafólk og muggar hjartanlega velkomið!

 

Einnig verður boðið upp á Harry Potter föndur og þrautir alla vikuna (ekki hluti af ratleiknum).

 

Viðburðurinn er ókeypis.