Draugaleg uppskeruhátíð!

Þriðjudaginn 26. september klukkan 17.00 verður Uppskeruhátíð Sumarlesturs í Bókasafni Reykjanesbæjar.

 

Í ár verður þemað frekar draugalegt en Halla Karen ætlar að lesa nokkrar laufléttar draugasögur í tilefni dagsins. Öll börn sem mæta verða svo hvött til að fara á draugaveiðar í safninu og taka við óvæntum glaðningi frá safninu.

 

Öll börn og foreldrar hjartanlega velkomin