Sýningu Byggðasafnsins fer að ljúka

Nú er hver að verða síðastur að sjá sýningu Byggðasafnins „Herstöðin sem kom og fór“ því henni lýkur 24. apríl. Sýninginn er í Gryfjunni í Duus Safnahúsum.

Sýningin fjallar um sögu Keflavíkurstöðvarinnar sem hófst á stríðsárunum með byggingu tveggja flugvalla, rúmlega hálfrar aldar sögu varnarliðsins og hvað gerðist eftir að herstöðin lokaði. En í ár eru 10 ár liðin síðan herstöðinni var lokað.