Ritun sögu Keflavíkur 1949-1994 hafin

Árni Daníel Júlíusson, sagnfræðingur,  var ráðinn til að rita sögu Keflavíkur 1949-1994 og hóf störf um síðustu áramót. Hann hefur vinnuaðstöðu hjá Byggðasafni Reykjanesbæjar í Ramma.

Árni Daníel stundaði sagnfræðinám við Háskóla Íslands frá 1984 og lauk þaðan MA-námi 1991. Árið 1993 hóf hann doktorsnám við Kaupmannahafnarháskóla og lauk þaðan doktorsprófi 1997. Þá hóf hann með mörgum fleirum vinnu að því að byggja upp ReykjavíkurAkademíuna og sat í fyrstu stjórn hennar 1997-1999. Hann sinnir enn verkefnum við ReykjavíkurAkademíuna meðfram starfi sínu sem sérfræðingur við Háskóla Íslands. Árni Daníel ritstýrði með öðrum og ritaði að hluta Íslenskan söguatlas 1.-3. bindi, sem út kom 1989-1993. Hann ritstýrði Landbúnaðarsögu Íslands 1.-4. bindi sem kom út 2013, og ritaði þar 1. og 2. bindið.

Árni Daníel mun öðru hvoru miðla sögumolum á vef Byggðasafnsins sjá  https://sofn.reykjanesbaer.is/byggdasafn/sogumolar