Ný grunnsýning verður opnuð 20. febrúar 2021 kl 14:00.

Bryggjuhúsið var byggt 1877. Þessi mynd er talin vera frá 1880.
Bryggjuhúsið var byggt 1877. Þessi mynd er talin vera frá 1880.

Sýningin ber heitið Fast þeir sóttu sjóinn  og er að hluta til byggð á bátalíkönum Gríms Karlssonar. Starfsmenn Byggðasafnsins vinna hörðum höndum þessa dagana að setja sýninguna upp. Sýningarstjóri er Eiríkur P. Jörundsson, safnstjóri Byggðasafnsins.