Lífið er meira en saltfiskur - endurskoðun menningarstefnu Reykjanesbæjar

Frá sýningu byggðasafnsins í Duus-Safnahúsum
Frá sýningu byggðasafnsins í Duus-Safnahúsum

Lífið er meira en saltfiskur   - endurskoðun menningarstefnu Reykjanesbæjar

Hvernig menningarlíf/mannlíf viljum við hafa í Reykjanesbæ?

Þriðjudaginn 27. febrúar frá klukkan 17.00 - 19.00 stendur menningarráð Reykjanesbæjar fyrir opnum íbúafundi í Duus Safnahúsum í tilefni þess að nú er kominn tími til að endurskoða menningarstefnu bæjarins og við viljum gjarnan fá þig að borðinu. Boðið verður upp á veitingar í hléi. 

Á fundinum verður núverandi stefna kynnt í fáum orðum en aðal áherslan verður lögð á að skapa íbúum tækifæri til að koma sínum áherslum á framfæri. 

Þetta verður gert með því að skipta fólki upp í umræðuhópa og gert ráð fyrir að hver og einn geti tekið þátt í a.m.k. þremur hópum. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér stefnuna sem nú er í gildi er bent á: https://www.reykjanesbaer.is/static/files/pdf_skjol_allir/menningarstefna-reykjanesbaejar.pdf

Allir íbúar bæjarfélagsins eru hvattir til að mæta, bæði ungir og aldnir, atvinnumenn og áhugafólk. Sérstaklega er óskað eftir þátttöku þeirra sem nú þegar eru í forsvari fyrir mismunandi menningar- og listhópa í bæjarfélaginu og/eða þeir sem hafa nýjar og ferskar hugmyndir að skemmtilegum nálgunum og lausnum í menningarmálum bæjarins.

Fundurinn verður haldinn í Bíósal Duus Safnahúsa, þriðjudaginn 27.febrúar kl. 17.00-19.00. Veitingar í hléi.

Umræðuhópar sem verða í gangi:
1. Tónlist (allar tegundir) 
2. Sviðslistir (dans, leikhús, kvikmyndir) 
3. Saga, menning, hefðir 
4. Myndlist, handverk, hönnun 
5. Bókmenntir, upplýsingamennt
6. Almenn menningarmál (hátíðarhald, viðburðir, fjölmenning)