Hugarflugsins fley

Á síðustu vikum fékk Byggðasafn Reykjanesbæjar heimsókn frá 1. og 2. bekk Myllubakkaskóla.

Nemendurnir skoðuðu sýninguna Fast þeir sóttu sjóinn og fengu innblástur af bátalíkönum Gríms Karlssonar. Í kjölfarið fengu nemendurnir tækifæri til að smíða sína eigin báta og skreyta.

Bátarnir verða til sýnis á BAUNinni í Bryggjuhúsinu. Það má með sanni segja að hugmyndaflug nemenda hafi fengi að ráða ferðinni og útkoman er stórskemmtileg. Verið öll velkomin á sýninguna!