Tannheilsa ungra barna

Fimmtudaginn 10. október klukkan 11.00 kemur Helena Ósk Árnadóttir tannlæknir og ætlar að fræða okkur um tannheilsu ungra barna á Foreldramorgni í Bókasafni Reykjanesbæjar.

 

Kaffi á könnunni. Viðburðurinn er ókeypis og öll hjartanlega velkomin með litlu krílin.
 
Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga kl. 11 í Bókasafni Reykjanesbæjar. Hópurinn er á Facebook og er að finna hér
 
Boðið er upp á fræðsluerindi einu sinni í mánuði en hina dagana geta foreldrar mætt með börnin sín og spjallað, drukkið kaffi og gluggað í bækur. Öll fræðsluerindin tengjast barnauppeldi og foreldrahlutverkinu á mismunandi hátt og leitast er eftir að hafa erindin fjölbreytt og endurspegla samfélagsumræðu dagsins í dag um uppeldi barna.
 
Bókasafn Reykjanesbæjar býður upp á notalegt umhverfi fyrir foreldra og börn. Í barnahorninu eru dýnur, leikföng, góð skiptiaðstaða er á salerni og gott aðgengi fyrir barnavagna, bæði inni í safninu og fyrir utan.