Sumarlestur - geimlestrarleiðangur

Þátttökuseðlar eru til reiðu á bókasafninu og börnin byrja á að velja á milli tveggja lestrartíma.

Verkefnið er svo tvíþætt. Annars vegar að lesa á fimm ólíkum geimstöðvum og merkja við alla staðina og hins vegar að hjálpa geimförunum að leysa stafarugl með orðum sem tengjast geimnum.

Munið að skrá nafn og símanúmer og skila inn seðlinum því það verður dregið úr heppnum þátttakendum – veglegir vinningar í boði.

Gangi ykkur vel og megi lesturinn ná nýjum hæðum í sumar!