Sumarlestur 2025
Gaggalagó – Halló! Linda landnámshæna kallar á allar lestrarhænur!
Í ár erum við með ævintýralegt lestrarferðalag! Linda landnámshæna býður öllum börnum sem eru byrjuð að lesa með sér í ferðalag um Terra Gallina – háspennandi ævintýraland hænanna!
Þetta er ekki bara venjulegt sumarlestrarátak! Þetta er sannkallað lestrarævintýri þar sem þú ferðast til staða eins og borgarinnar Santíeggó, siglir yfir Hænusund, rannsakar ógnvekjandi ævintýri í Hanaoi, og endar á sólríkri strönd í Hanama.
Hvað þarf að gera?
Það er einfalt! Komdu í Stapasafn, fáðu þitt eigið vegabréf og farðu í ferðalag með Lindu landnámshænu!
Í vegabréfinu er landakort og þú byrjar ferðina með Lindu efst í vinstra horni. Markmiðið er að lesa í 15 mínútur á dag og fylgjast með því hvernig þú ferðast með hænunni um landið.
Þegar þú lest, merkir þú við á kortinu. Við fjórða hvern lestur hefur þú lesið í klukkustund og lendir á stjörnu. Fyrir hverja stjörnu á vegabréfinu færðu stimpil eða límmiða í vegabréfið og jafnframt happamiða til að setja í lukkupott. Þegar þú hefur náð að heimsækja alla áhugaverðu staðina í Hænulandi (sem er einmitt það sem Terra Gallina þýðir!) þá getur þú með stolti sagt: “Ég hef heimsótt Terra Gallina!”
Tvisvar sinnum í mánuði verða heppnar lestrarhænur dregnar úr lukkupottinum og fá skemmtilegan vinning. Fyrir allra duglegustu lestrarhænurnar verða 6 lestraráskoranir í boði sem getur aukið líkur þeirra á að vera dregin úr pottinum, hægt er að nálgast þær í Stapasafni.
Uppskeruhátíð sumarlestursins
Til þess að fagna skemmtilegum Sumarlestri verður uppskeruhátíð í lok sumars, nánari upplýsingar um það síðar.