Sumar-popup fyrir krakka!

Í sumar býður Bókasafnið upp á popup viðburði fyrir káta krakka!

 

Sumar-popup eru fjölbreyttir óvissuviðburðir sem við skipuleggjum eftir veðri og stemningu að hverju sinni.
Föndur og útileikir eru meðal þess sem boðið verður upp á.
 
Viðburðurinn verður haldinn í Stapasafni á Dalsbraut 11 í Innri-Njarðvík. 
 
Viðburðirnir eru að sjálfsögðu ókeypis og öll hjartanlega velkomin.