Sögustund með Höllu Karen og afmælisveisla Bangsímons
14.10 kl. 16:30-17:30
Viðburðir - forsíða
Bókasafn
Bangsímon á 100 ára afmæli og því ætlum við að halda upp á það með alvöru bangsa-sögustund!
Halla Karen les upp úr sögunni um Bangsímon og félaga hans og við eigum saman dásamlega stund í heimi þeirra í Hundraðekruskógi.
Þar sem alþjóðlegi bangsadagurinn er líka handan við hornið, 27. október, hvetjum við öll börn til að taka uppáhaldsbangsann sinn með í afmælisveisluna.
Þetta verður alvöru afmælisveisla, með afmælisköku, djúsi og kaffi fyrir gesti.
Viðburðurinn verður miðvikudaginn 14. október kl. 16:30 í Stapasafni.
Öll börn og bangsar velkomin, að kostnaðarlausu!