Skáldasuð - ljóðaupplestur
16.04 kl. 17:00-23:59
Viðburðir - forsíða
Skáldasuð er ljóða- og listahátíð suður með sjó þar sem reynd og
glæný skáld koma saman, lesa upp úr ljóðum og eiga í samtali við áheyrendur. Í ár fáum við fjölbreytta flóru af skáldum í heimsókn til okkar á safnið.

Mazen Maarouf
Er ljóðskáld frá Palestínu fæddur 1978 í Beirút en hann bjó í
Líbanon lengi. Hann hefur verið tilnefndur til hinn virtu Man Booker alþjóðlegu bókaverðlaunanna 2019 og Edinborgarbókmenntaverðlaunin auk Saif Ghobash Banipal verðlaunin. Hann hefur hlotið ítölsku LiteraturLana verðlaunin fyrir ljóð árið 2015.

Valdimar Tómasson (Gríma Kamban)
Hann hefur gefið út sjö ljóðabækur nú síðast Söngvar
sársaukans sem kom út í fyrra. Valdimar yrkir í knöppu
formi og með markvissu og afar fáguðu myndmáli um
djúpar og stundum sárar tilfinningar. Flest ljóð Valdimars
eru stuttir stuðlaðir textar með frjálsri hrynjandi.

Margrét Gísladóttir
Ljóðabókin Við vegg tímans kom út í fyrra og eitt ljóðanna var valið meðal 10 úrvalsljóða af Orðskjálfta 2025 sem kemur út í bók í apríl ásamt úrvalsljóðum frá öðrum Norðurlöndum. Árið 1991 kom
ljóðabókin Í birtingu út eftir hana og ný ljóðabók er væntanleg í haust.

Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir
Hún rekur Kanínuholuna - fornbókaveröld - í
bílskúrnum sínum. Bókin sem Móheiður les upp úr er eftir palentíska skáldið Mosab Abu Toha og er fyrsta bókin sem er gefin út undir merkjum Kanínuholunnar.

Ægir Karl Ægisson
Hann hefur samið ljóð í hrunum í nokkra áratugi eða alveg síðan frá síðasta árþúsundi og hefur gaman af allskonar hljómum og
ljóðmyndum.

Gunnhildur Þórðardóttir
Hún hefur gefið út sjö ljóðabækur og fengið ljóðaverðlaunin Ljósberann. Hún er að vinna að áttundu ljóðabókinni og mun lesa ljóð úr henni og ljóðabókinni Vetrarmyrkur sem kom út fyrir jólin.