Síðasti hittingur Heimskvenna

Nú er komið að síðasta hittingi Heimskvenna á önninni!

Hópurinn ætlar að hittast og eiga saman notalega stund í Bókasafninu þann 1. júní kl. 13.00 (ekki 12.00!) og kíkja saman á fjölmenningarhátíð sem verður í bænum.

Heimskonur er hópur ætlaður konum af erlendum uppruna sem vilja hittast og eiga saman notalega samverustund. Þar geta þær deilt sögum sínum og reynslu, ásamt því að skapa tengslanet við aðrar konur í samfélaginu. Hópurinn er einnig opinn konum af íslenskum uppruna.

 

Viðburðurinn er ókeypis og allar konur hjartanlega velkomnar!

 

English:

 

Women of the World will be meeting for the last time this semester on June 1st at 1 p.m. (not 12 noon!) at the Reykjanes Public Library. As well as taking a look at the multicultural festival in the town.

 

The group is intended as a safe space for foreign women living in Reykjanesbær to come together and enjoy good company. There they can share their stories and experiences, and practice language skills. Women of Icelandic origin are also welcome.

 

The event is free and we welcome all women!