Ræktun fyrir alla - sáning sumarblóma og matjurta

Garðyrkjufélag Suðurnesja heldur kynningu á sáningu sumarblóma og matjurta. Fanney M. Jósepsdóttir, formaður félagsins, mun ásamt öðrum stjórnarmönnum kenna réttu handtökin við sáninguna.
 
Bókasafnið leggur til fræ og mold en þátttakendur á kynningunni þurfa að koma með ílát fyrir moldina og fræin.
 
Félagið hvetur alla áhugasama til að mæta, eiga notalega kvöldstund og kynnast undirstöðuatriðum sáningar á fræjum og þeim ávinningi sem slík vinna getur skilað.