Ræktun fyrir alla - haustlaukar
30.09 kl. 19:30-21:30
Viðburðir - forsíða
Í samvinnu við Garðyrkjufélag Suðurnesja. Haustlaukar eru laukar eða hýði sem við gróðursetjum að hausti. Flestir af haustlaukunum blómstra að vori en þó eru nokkrar tegundir sem blómsta að hausti.
Þá eru þetta líka góður tími til að setja niður hvítlauka (geira) sem við tökum upp næsta sumar.
Farið verður yfir hvernig setja á niður laukana og hvar þeir gefa bestu útkomu af sjálfum sér. Fanney Margrét Jósepsdóttir sér um sýnikennsluna ásamt Sigríði M. Eyþórsdóttur.
Félagið hvetur alla áhugasama til að mæta, eiga notalega kvöldstund og kynnast undirstöðuatriðum haustlaukanna.
Athugið að gengið er inn í húsið hjá Merkinesi