Notaleg sögustund með Höllu Karen

Laugardaginn 20. maí kl. 11.30 er Notaleg sögustund með Höllu Karen. Halla Karen segir sögu af Emil í Kattholti og syngur nokkur vel valin lög með börnunum.

 

Hvar: Bókasafn Reykjanesbæjar | Miðjan
Hvenær: Laugardaginn 20. maí kl. 11.30

 

Ókeypis er á viðburðinn og öll hjartanlega velkomin. Tilvalin samverustund fyrir alla fjölskylduna.