Notaleg sögustund með Höllu Karen

Laugardaginn 26. október kl. 11.30 er Notaleg sögustund með Höllu Karen

 

Halla Karen les og syngur úr heilsueflandi ævintýrinu um Latabæ eftir Magnús Scheving.

 

Sögustundir Höllu Karenar hafa notið mikilla vinsælda meðal yngstu kynslóðarinnar og er hún á dagskrá í Bókasafninu síðasta laugardag hvers mánaðar.

 

Viðburðurinn er tilvalin samverustund fyrir alla fjölskylduna!

 

Kostar ekkert og öll hjartanlega velkomin!