Náttúruupplifun fyrir börn og fjölskyldur

Náttúruupplifun fyrir börn og fjölskyldur

Við bjóðum ykkur velkomin á nýja sýningu í Átthagastofunni!  Sumarsýning: náttúruupplifun fyrir börn og unglinga mun standa yfir í allt sumar og vaxa þegar líður á sumarið.

Sýningin er hluti af sumarlestri í Bókasafninu þar sem grunnskólanemendur keppast um hvaða skóli les flestar bækur. Eftir hverja bók sem nemandi les, fær hann/hún/hán skraut í einkennislit skólans síns sem hengja má upp á vegg sýningarsalsins. 

Með þessu stækkar sýningin yfir sumartímann og hægt verður að fylgjast með árangri skólanna.

 

Uppskeruhátíð sumarlestursins

Í lok sumars fögnum við sumarlestrinum með uppskeruhátíð, föstudaginn 30. ágúst fyrir öll sem tóku þátt.

Grunnskólarnir sem lenda í 1. til 3. sæti sumarlesturskeppninnar, fá viðurkenningarskjal og peningaverðlaun fyrir bókakaupum.

Að því loknu verður Bingo í miðjunni og veglegir vinningar í boði.

 

Sýningin er ókeypis og öll hjartanlega velkomin!

Bókasafnið er opið 09.00 - 18.00 alla virka daga. Lokað er laugardaga á sumrin.