Námskeið um Njálssögu - seinni hluti
07.02 kl. 19:30-21:30
Viðburðir - forsíða
Bókasafn
Þriðjudaginn 7. febrúar klukkan 19.30 hefst seinni hluti námskeiðs um Njáls sögu í Bókasafni Reykjanesbæjar.
Þorvaldur Sigurðsson bókmennta- og íslenskufræðingur stýrir námskeiðinu, sem verður 5 þriðjudagskvöld frá klukkan 19.30-21.30.
Verð: 5.000 kr,- en innifalið er kaffi og meðlæti. Skráning nauðsynleg en hægt er að skrá sig í afgreiðslu safnsins eða hér. Athugið að þetta er síðasta námskeiðið sem Þorvaldur heldur í bókasafninu vegna þess að hann ætlar að hætta að vinna með vorinu.