Námskeið í bývaxdúkagerð

Námskeið í vaxdúkagerð fer fram í Bókasafni Reykjanesbæjar.

Námskeiðin eru 2 klukkustundir en vegna fjarlægðartakmarkana verða aðeins 6 pláss í boði á hverju námskeiði. 

Fyrra námskeiðið hefst klukkan 10.00 og seinna klukkan 20.00. Skráning nauðsynleg hér kl. 10.00 og hér kl. 20.00.

Nauðsynlegt er að taka með sitt eigið straujárn á námskeiðið.  Útbúnir verða umhverfisvænir vaxdúkar sem koma í stað plasts við geymslu matvæla.                  

Skráning fer fram á heimasíðu Bókasafns Reykjanesbæjar og í afgreiðslu. 

Ókeypis er á námskeiðið og allir hjartanlega velkomnir að taka þátt. 

 

Viðburðurinn er hluti af umhverfisvænum september í bókasafninu.