Lesið fyrir hund
04.04 kl. 11:30-12:30
Viðburðir - forsíða
Bókasafnið, í samstarfi við félagið Vigdísi – Vini gæludýra á Íslandi, býður börnum að lesa fyrir sérþjálfaða hunda.
Börnin geta komið með eigin bók eða valið sér lesefni á safninu. Barnið verður að geta lesið sjálft.
Öll grunnskólabörn velkomin en takmarkaður fjöldi kemst að.
Nauðsynlegt er að skrá sig og boða forföll með fyrirvara.
Hlekkur á skráningu:
https://docs.google.com/.../1FAIpQLSelftgvu9969H.../viewform
https://docs.google.com/.../1FAIpQLSelftgvu9969H.../viewform
Athugið: skráning tryggir ekki pláss á viðburðinum. Ef fjöldi skráninga fer yfir hámark verður farið eftir tímasetningu skráninga og aðrir settir á biðlista. Þátttakendur fá staðfestingu í tölvupósti.
Staðsetning: Aðalsafn í Merkinesi.