Krakkakosningar 2026
11.-16. maí
Viðburðir - forsíða
Við setjum upp kjörklefa fyrir krakkana. Þau taka með sér kjörseðil í klefann (athugið að engin mamma og pabbi eru leyfð þar) og kjósa á milli þriggja viðburða: armbandagerðar, slímgerðar og vasaljósaleitar. Ef þeim líst ekki á þessa valkosti þá mega þau skrifa niður sínar eigin hugmyndir.
Nú er bara að hvetja krakkana til að hafa áhrif á sitt bókasafn og nýta kosningaréttinn sinn. Hlökkum svo til að telja upp úr kjörkassanum og sjá hvað varð fyrir valinu.