Sýning í Átthagastofu | Heima er þar sem hjartað slær

Heima þar sem hjartað slær er myndlistarsýning sem sýnir afrakstur kvenna frá öllum heimshlutum sem komu saman og bjuggu til listaverk sem endurspegluðu hvaða merkingu "heima" hafði fyrir þær. Sýningin er afrakstur vinnustofa sem íslenski listamaðurinn Anna Maria Cornette og bandaríski listkennarinn Gillian Pokalo héldu víðsvegar um Ísland undanfarin misseri en listaverkin voru búin til með silkiprentuðu myndefni en síðan var fullunnum verkunum breytt í klukkur sem minna á okkar eigin hjartslátt. Verkefnið er samvinnuverkefni fimm bókasafna víðsvegar um landið; Ísafirði, Egilsstöðum, Dalvík, Árborg og Reykjanesbæ, og er styrkt af Bókasafnssjóði. Þessi sýning er lokaliðurinn í þessum hluta verkefnisins. 

Sjón er sögu ríkari.

Ókeypis aðgangur er á sýninguna og eru öll hjartanlega velkomin.