Heilsuvika - Krakkajóga með Sibbu

Í tilefni heilsuviku býður Bókasafn Reykjanesbæjar upp á krakkajóga sunnudaginn 11. október kl.11.30-12.30.
 
Sigurbjörg Eydís Gunnarsdóttir leikskólakennari og jógakennari leiðir tímann þar sem farið verður í skemmtilegar sögur, æfingar, öndun og slökun.
 
Tilvalin afþreying fyrir alla fjölskylduna!
 
Ókeypis er á viðburðinn og öll börn hjartanlega velkomin