Heilsuvika - heilsufarsskoðun
09.10 kl. 12:00-17:00
Viðburðir - forsíða
Heilsufarsskoðun í tilefni af heilsuviku Reykjanesbæjar.
Brunavarnir Suðurnesja bjóða upp á ókeypis heilsufarsskoðun í Aðalsafni, 9. október frá kl. 12.00 – 17.00
Kannað verður með:
Blóðþrýsting.
Púls
Súrefnismettun
Á viðburðinum verður slysavarnardeildin Dagbjörg með endurskinsmerki til að gefa gestum og kynningu á starfi sínu. Jafnframt bjóða þau upp á bæklinginn Örugg efri ár, sem fjallar um slysahættu á heimilum og stutt spjall fyrir þá sem hafa áhuga á því efni.
Öll eru hjartanlega velkomin!