Handavinnuhópur

Langar þig til þess að prjóna, hekla, sauma og spjalla í góðum félagsskap?

 

Í Stapasafn hittist handavinnuhópur og öll  eru velkomin að taka þátt,
hvort sem um ræðir eitt skipti eða öll.

Hópurinn hittist tvisvar í mánuði kl. 20.00 í Stapasafni
á Dalsbraut 11 (sami inngangur og í íþróttamiðstöð) .

 

 Brynja, Guðný og Þórey taka á móti öllum sem vilja taka þátt. 

Athugið að ekki er um kennslu að ræða að þessu sinni heldur er frekar lögð
áhersla á góðan félagsskap og að hópurinn  hjálpist að innbyrðis.

 

Hópurinn er á Facebook: HESPA handavinnuhópur | Facebook

 Hittingarnir eru að sjálfsögðu ókeypis og öll hjartanlega velkomin.