Goðsagnir um sögu Íslands

Norræna félagið á Suðurnesjum býður til viðburðar með Boga Ágústssyni sem segir frá gerð sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþátta sem fjalla um hvernig Íslendingar hafa hefðbundið litið á eigin sögu og hvaða misskilningur þar ríkir, ekki síst um samband Íslands og Danmerkur.
 
 
Þættirnir eru unnir fyrir RÚV þar sem fjallað er um fyrstu aldir Íslandsögunnar, þjóðveldistímann, sem Íslendingar hafa litið á sem einhvers konar gullöld í þjóðarsögunni. Einnig er athyglinni beint að ,,hinum myrku miðöldum", einkum 17. og 18. öldinni, frá einokunarverslun til Móðuharðinda. Staða Íslands í danska ríkinu og baráttuna fyrir aukinni heimastjórn og sjálfstæði á 19. og 20. öld verður einnig til umfjöllunar.
 
Viðburðurinn verður haldinn á Bókasafni Reykjanesbæjar, aðalsafni Hjallavegi 2 og gengið inn í Merkines.
 
Öll velkomin, hvort sem er félagar í Norræna félaginu á Suðurnesjum eða aðra áhugasama gesti.