Glæpakviss

Glæpakviss í Bókasafninu með Önnu og Inga

Fimmtudaginn 5. september kl. 17.30 bjóðum við upp á spennandi glæpakviss úr íslenskum glæpasögum í miðju Bókasafnsins!

  • Miðað er við að keppnin taki um það bil 90 mínútur.
  • Miðað við að ekki séu fleiri en fjögur saman í liði (ekki heilög tala).
  • Spurningarnar eru ýmist hreinar textaspurningar eða spurningar með myndastuðningi.  

 

Verðlaun verða veitt fyrir sigurliðið og aukaverðlaun ákveðin á staðnum.

Glæpakvissið kostar ekkert og öll eru hjartanlega velkomin. Anns og Ingi stýra keppninni og við ábyrgjumst hlátur og gleði!

 

Viðburðurinn er unninn í samstarfi við Hið íslenska glæpafélag og er styrktur af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja. 
Spurningakeppnin er samin af Ævari Erni Jósepssyni, formanni Hins íslenska glæpafélags. Verkefnið Glæpafár á Íslandi er styrkt af Bókasafnasjóði.