Fræðsluerindi í Stapasafni - ungbarnanudd

Í fyrirlestrinum verður fjallað um:
• Hvað ungbarnanudd er og á hverju það byggir
• Ávinning þess fyrir barn og foreldra
• Hvernig hægt er að nýta nuddið í daglegu lífi
• Hvernig lesa má í merki barnsins og laga stundina að þörfum þess
 
Einnig verður stutt sýnikennsla þar sem foreldrar læra einfaldar strokur fyrir fótleggi og fót barnsins.
Ef barnið er sofandi, vill fylgjast með eða er ekki upplagt í nudd geta foreldrar æft strokurnar á sérhönnuðum nudddúkkum sem verða á staðnum.
 
Hafdís Ósk Jónsdóttir er vottaður leiðbeinandi í ungbarnanuddi hjá International Association of Infant Massage (IAIM), heilsunuddari með yfir 20 ára starfsreynslu og kennslufræðingur. Hún hefur áratuga reynslu af því að vinna með fólki á öllum aldri og leggur áherslu á einfaldar og hagnýtar leiðir til að styðja við vellíðan, öryggi og líkamsvitund.
 
Fyrirlesturinn hentar foreldrum með börn frá fæðingu og fram að skriðaldri, jafnt þeim sem eru að eignast sitt fyrsta barn sem og þeim sem vilja bæta við þekkingu sína og verkfæri til daglegrar umönnunar.
 
Velkomin á fræðandi stund, í Stapasafni 12. október kl. 10.30, sem getur nýst ykkur allt frá fyrstu dögum barnsins og langt inn í framtíðina.