Fræðsluerindi um matvendni barna með Café Sigrúnu
26.03 kl. 11:00-23:59
Viðburðir - forsíða
Fyrirlestur á foreldramorgni um matvendni barna með Sigrúnu Þorsteinsdóttir, betur þekkt sem Café Sigrún.
Hún heldur úti vefsíðunni cafesigrun.com þar sem má finna margvíslegan fróðleik og uppskriftir.
Sigrún er klínískur barna- og heilsusálfræðingur og með doktorsgráðu í heilsueflingu. Hún hefur unnið við rannsóknir síðastliðin ár sem snúa að matvendni barna með og án taugaþroskaraskana (ADHD og einhverfu) en einnig offitu barna. Hún flytur erindi um matvendni barna og gefur einnig góð ráð til foreldra.
Við hittumst í Aðalsafni á Hjallavegi 2, fimmtudaginn 26 mars kl. 11:00
Viðburðurinn er ókeypis og foreldrar velkomnir með krílin sín. Heitt verður á könnunni.