Fornsögunámskeið með Önnu Karlsdóttur Taylor
05.10 kl. 19:30-21:00
Viðburðir - forsíða
Ertu til í að kafa ofan í fornan menningararf?
Við bjóðum upp á spennandi námskeið í fimm hlutum þar sem við rýnum í Eyrbyggja sögu sem er í handritum kölluð fullu nafni „Saga Þórsnesinga, Eyrbyggja og Álftfirðinga“, og bendir það til þess hve hún kemur víða við hjá ættum Snæfellinga, enda er hún nokkuð margbrotin. En einn maður tengir þó söguna saman næstum frá upphafi til enda; það er Snorri goði Þorgrímsson, mesti höfðingi Snæfellinga um sína daga fyrir og eftir 1000.
Íslendingasögurnar eru ekki bara gamlar bækur – þær eru spegill á mannlegt eðli, sögur um stórar tilfinningar og ævintýralega kænsku sem lifað hefur með þjóðinni í margar aldir.
Komdu og uppgötvaðu hvers vegna þessar sögur eru enn jafn ferskar og raunverulegar í dag. Engin fyrri þekking nauðsynleg – bara forvitni!
Skráning í afgreiðslu eða á bokasafn@reykjanesbaer.is
Verð: 5000 kr. - kaffi og meðlæti innifalið.
Námskeiðið hefst 5. október - ef næg þátttaka fæst.
5 kvöld: 5. 12. 19. 26. október og 2. nóvember