Erindi um sögu og starfsemi Jónshúss

Þann 10. desember kl. 19:30 í Bókasafni Reykjanesbæjar verður jólafundur Norræna félagsins á Suðurnesjum. Gestur fundarins er Halla Benediktsdóttir forstöðumaður Jónshúss í Kaupmannahöfn. Hún segir okkur sögu hússins, frá starfseminni í húsinu og svarar fyrirspurnum.
 
Í húsinu er íbúð Jóns og Ingibjargar, fræðimannaíbúðir og samkomustaður Íslendinga í Kaupmannahöfn með skemmtun, fróðleik og menningu að leiðarljósi.
 
Halla er einnig skipuleggjandi prjónahátíðarinnar Pakhusstrik sem haldin verður í 14. skiptið í september á næsta ári í Kaupmannahöfn. Þar er áherslan á færeyska, grænlenska og íslenska ull og hönnun. Halla segir frá hátíðinni og svarar spurningum gesta.
 
Halla Benediktsdóttir er Keflvíkingur sem búið hefur í 17 ár í Kaupmannahöfn.
 
Viðburðurinn er haldinn í samvinnu við Bókasafn Reykjanesbæjar.