Ljósanótt: Eldur á Reykjanesskaga
03.09 kl. 15:00-18:00
Viðburðir - forsíða
Myndasýningin Eldur á Reykjanesskaga samanstendur af myndskeiðum sem tekin eru á dróna í eldgosunum á Reykjanesskaga á árunum 2021-2024 og eru tengd við tónlist Gustav Holst, Pláneturnar.
Það er plánetan Mars sem hljómar undir í þessari myndasýningu þar sem myndskeið og tónlist renna saman í eina heild. Plánetan Mars í verki Holst er tæpar 8 mínútur að lengd og þar af leiðandi er myndasýningin tæpar 8 mínútur í flutningi.
Eldur á Reykjanesskaga er ekki heimildamynd um eldgosin á Reykjanesskaga í tímaröð, heldur miklu fremur listræn framsetning í myndum og tónum.
Höfundur myndasýningarinnar er Magnús Einarsson.
Sýnd í Félagsbíói 3. september (kl. 15–18) og 6. september (kl. 14–17).