Eldur á Reykjanesskaga á Safnahelgi
17.10 kl. 13:00-16:30
Viðburðir - forsíða
Bókasafn
Gekk 40 sinnum upp að gosstöðvunum og missti þrjá dróna ofan í kvikuna!
„Fljótlega eftir að eldgos hófst á Reykjanesskaga í mars 2021 fór ég upp að gosstöðvunum með myndavélina mína. Eftir nokkrar ferðir ákvað ég að skipta yfir í drónamyndatöku til að fanga gosið betur, enda tók það miklum breytingum á þessum fyrstu vikum.“
Magnús Einarsson mætir með myndasýninguna Eldur á Reykjanesskaga á Safnahelgi, tekur á móti gestum og gefur innsýn í tilurð verksins.
„Hér var komið kjörið tækifæri til að safna myndum sem gátu fallið vel að ákveðnu verkefni sem fólst í því að tengja saman tónlist Gustavs Holst og ljósmyndir af náttúru Íslands. Hérna runnu vel saman iðandi eldgos og hraði í tónlistarþættinum sem Holst kennir við fyrstu plánetuna, Mars. Flæði kviku, tóna og lita í þessari sýningu spannar rétt tæpar 8 mínútur. Dróninn varð skyndilega lykillinn að því að fanga þennan samruna kviku, tóna og lita.“
Þessi stórbrotna kvikmynd samanstendur af drónamyndskeiðum sem tekin eru af sex eldgosum á tímabilinu 2021 til 2024. Magnús tekur fram að markmiðið hafi þó aldrei verið að búa til beina heimildamynd í klassískum skilningi um eldgos á Reykjanesskaga.
Komdu í Félagsbíóið okkar á laugardaginn kl. 13 og sjáðu náttúruöflin í allri sinni dýrð. Sjón er sögu ríkari!
Sýnd á hálftíma fresti til kl. 17.00.