Dansað í Bergi: Verðlaunaatriði Dance World Cup 2025
07.09 kl. 10:00-17:00
Viðburðir - forsíða
Í júlí 2025 tóku tveir dansskólar frá Reykjanesbæ, Danskompaní og Ungleikhúsið,
þátt í Dance World Cup sem fram fór á Spáni.
Á mótinu er keppt í mismunandi flokkum eftir dansstíl, aldri og stærð hópa.
Skólarnir náðu sögulegum árangri og sópuðu að sér verðlaunum.
Alls hlutu skólarnir 11 gullverðlaun, 7 silfurverðlaun og 7 bronsverðlaun.
Verðlaunaatriðin verða sýnd í Bergi í Hljómahöll sunnudaginn 7. september
og munu rúlla á opnunartíma Bókasafnsins frá kl. 10–17.
Gestir og gangandi eru hvattir til að kíkja við
og geta séð brot af dönsunum eða horft á þá alla sem tekur um 75 mínútur.