Bókakynning og upplestur

Fimmtudagskvöldið 27. nóvember kl. 20:00 verður haldin bókakynning og upplestur í Bókasafni Reykjanesbæjar Hjallavegi 2.

 

Fram koma rithöfundarnir: Kolbeinn Þorsteinsson, Marta Eiríksdóttir, Reynir Traustason og Una Margrét Jónsdóttir.

 

  • Kolbeinn Þorsteinsson segir frá bók sinni Mamma og ég – Myndir og minningar, þar sem hann fjallar um samband sitt við móður sína Ástu Sigurðardóttur sem var þjóðþekktur rithöfundur.  Í bókinni lýsir hann þeim mikla sársauka sem fylgdi því að alast upp hjá móður sem glímdi við óreglu og fíkn.
  • Marta Eiríksdóttir les upp úr nýjustu bók sinni, Þjáningin er fæðingarhríð skilningsins sem fjallar um þjáninguna, sem er eins konar þroskasaga keflvískrar stúlku. Marta er íslenskukennari að mennt en starfar í dag sem jógakennari og bókaútgefandi eigin bóka. Hún hefur skrifað og gefið út sjö bækur frá árinu 2012.
  • Reynir Traustason, fyrrverandi blaðamaður og ritstjóri, mun lesa upp úr nýjustu bók sinni, Fólkið í vitanum – Gleði og sorgir í Hornbjargsvita. Bókin geymir harmþrungnar, glaðbeittar og ævintýralegar frásagnir af fólki sem bjó við Hornbjargsvita frá 1930 til 1995. Bókin byggir á fjölda viðtala, bréfaskriftum og rituðum útgefnum heimildum um líf og starf í vitanum og nágrenni hans.
  • Una Margrét Jónsdóttir, dagskrárgerðarkona á Rás 1 og fræðimaður í leikhústónlist, les upp úr bók sinni, Silfuröld revíunnar sem er síðara bindi íslenskrar revíusögu. Í bókinni er fjallað um revíur frá 1957-2014 auk kabaretta og áramótaskaupa. Meðal annars mikið fjallað um revíur í Keflavík/ Reykjanesbæ, frá 1988-2015, eins og revíur eftir Ómar Jóhannsson, Huldu Ólafsdóttur og fleiri.

 

Hægt verður að kaupa áritaðar bækur beint af höfundum á viðburðinum.

Boðið verður upp á kaffi og konfekt.

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin!