Bókakvöld Bókasafns Reykjanesbæjar
10.03 kl. 20:00-23:59
Viðburðir - forsíða
Djassbandið Þríó mun opna kvöldið með nokkrum ferskum og persónulegum djasshljómum. Bandið skipar Jón Böðvarsson á saxafón, Ástþór Sindri Baldursson á bassa og Sigurður Baldvin Ólafsson á gítar.
Eliza Reid gefur okkur innsýn í lífið á bak við tjöldin sem forsetafrú í bók sinni The First Lady Next Door. Eliza er þekkt fyrir að skrifa um „sprakka“ – íslenskar afrekskonur – og nú fáum við að heyra hennar eigin sögu.
Emil Hjörvar tekur okkur í dularfullt ferðalag í fantasíunni Eilífðarvetur. Þar ríkir vægðarlaus kuldi, mannskæðir frostbyljir bresta á daglega og enginn kemst burt.
Hildur Knútsdóttir mun svo fá hárin til að rísa með frásögn af glænýrri hrollvekju fyrir fullorðna – Irpu.
Höfundarnir munu segja frá sköpunarferlinu og spjalla við gesti að loknum upplestri.
Öll velkomin og ókeypis aðgangur.
Viðburðirnir ,,Kynning á bókmentaarfinum'' eru samstarfsverkefni almenningsbókasafna Suðurnesja sem styrktir eru af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.