Bókakonfekt barna
14.11 kl. 15:30-17:00
Viðburðir - forsíða
Eva Rún og Blær koma til okkar með verðlaunabók sína „Bestu vinir“, sem hlaut Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2026. Þetta er fyndin spennusaga um vináttu, full af hasar og húmor!
Matthildur Yrsa Sigurðardóttir var ellefu ára þegar náttúruhamfarirnar í Grindavík hófust. Í bókinni „Síðasti dagurinn“ segir hún frá reynslu sinni í samvinnu við Þórunni Rakel Gylfadóttur, og Didda Flygenring myndlýsir. Fyrir verkið hlutu þær Sólfaxa, íslensku barnabókaverðlaunin, árið 2026.
Aðgangur ókeypis og öll velkomin