Hamravík KE 75
Líkan af bátnum Hamravík KE 75 smíðað af Grími Karlssyni.
Hamravík KE 75 var smíðuð í Noregi árið 1963 úr stáli. 192 brl. 495 ha. Lister díesel vél. Eigandi skipsins var Hraðfrystihús Keflavíkur h/f, Keflavík, frá 16. maí 1963. Skipið var selt til Noregs og tekið af skrá 10. des 1979.
Heimild: Íslensk skip eftir Jón Björnsson
Þegar smellt er á myndirnar hér fyrir neðan þá birtast stærri myndir.