Hafdís ÍS 75

Hafdís ÍS 75

Líkan af bátnum  Hafdís ÍS 75  smíðað af Grími Karlssyni.

Hafdís ÍS 75 var smíðuð í Svíþjóð árið 1946 úr eik. 79 brl. 215 ha. Polar díesel vél. Eigandi skipsins var Njörður h/f, Ísafirði, frá 10. júlí 1947. Skipið var selt 19. okt 1956 Vesturhúsum h/f, Þingeyri og Einari Ragnarssyni, Vestmannaeyjum. Skipið brann og sökk í róðri á Selvogsbanka 10. feb 1960. Áhöfnin, 6 menn, bjargaðist í gúmmíbjörgunarbát skipsins. Síðan bjargaði áhöfn Fróðakletts frá Hafnarfirði mönnunum til lands.  

Heimild: Íslensk skip eftir Jón Björnsson. Iðunn 1990.

Þegar smellt er á myndirnar hér fyrir neðan birtast stærri myndir.