Skreytum saman í Bryggjuhúsi

Sunnudaginn 2. desember frá kl. 14 – 15 er fjölskyldum boðið að stíga út úr amstri hversdagsins og njóta þess að koma saman í Bryggjuhúsi þar sem búin verða til kramarhús, jólahjörtu og músastigar og salurinn skreyttur. Þann 9 desember verður síðan haldið gamaldags jólatrésskemmtun í anda Duusverslunar.


Fyrir um 100 árum síðan stóð Duusverslunin, sem þá var starfrækt, fyrir jólatrésskemmtunum fyrir bæjarbúa í Bryggjuhúsi sem er elsta húsið í Duushúsalengjunni. Allt upp undir 300 börn komu þar saman og dönsuðu í kringum jólatréð og voru mörg þeirra að sjá þar jólatré í fyrsta sinn. 

Síðastliðin tvö ár hefur þessi saga verið rifjuð upp og haldið gamaldags jólaball í Bryggjuhúsinu og helgina áður var boðið upp á föndurstund þar sem fjölskyldur föndruðu skreytingar á jólatréð og í salinn en einnig til að taka með heim. Var þetta einstaklega vel heppnað og því verður leikurinn endurtekinn í ár.