Viðburðir í vetrarfríi

Vetrarfrí grunnskóla - dagskrá í Bókasafni Reykjanesbæjar

 

Óðum nálgast vetrarfrí grunnskóla Reykjanesbæjar. Í Bókasafni Reykjanesbæjar verður lifandi og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna.

Dagskráin verður dagana 19.-24. október. Safnið er opið á virkum dögum frá klukkan 09.00 – 18.00 og á laugardögum frá klukkan 11.00 – 17.00.

Boðið verður upp á ratleik, kvikmyndasýningu, hrekkjavöku-grímugerð og að sjálfsögðu frábærar bækur.

Við ætlum að kynnast sögunni um Diddu og dauða köttinn betur í vetrarfríinu. Söguna skrifaði Kikka sem bjó lengi vel í gamla bænum í Keflavík og samnefnd kvikmynd er einmitt tekin upp þar. Ratleikurinn verður úr sögunni og opinn fyrir alla sem vilja taka þátt. Þá geta vinir, fjölskyldur og einstaklingar farið í leikinn.

Allir sem skila þátttökuseðli eiga kost á að vinna bókina um Diddu og dauða köttinn.

Kvikmyndin verður sýnd tvisvar sinnum; föstudaginn 21. október og mánudaginn 24. október klukkan 11.00 í safninu.

                   Sérstakt tilboð á barnamatseðli verður í Ráðhúskaffi þessa daga, hálft panini og svali eða kókómjólk á 500 krónur.

 Frábært tækifæri fyrir fjölskyldur að leika sér saman og kynnast skemmtilegum sögupersónum.