Ljósanótt | Ljóðagjörningur
31.08 kl. 17:00-17:30
Viðburðir bókasafn
Bókasafn
Ljóðagörningur kl. 17.00 í Miðju bókasafnsins. „Allir eiga sér sögu. Öll búum við yfir kærleika og höfum upplifað ástir og sorgir, hamingju og gleði.“
Eyrún Ósk Jónsdóttir flytur ljóð úr ljóðabók sinni Í svartnættinu miðju skín ljós við trommundirleik Akeem Richards sem spilar á afrískar trommur. Öll ljóðin byggja á persónulegum frásögnum fólks. Verkið er seiðandi og áhrifamikið og fjallar um málefni samtímans. Gjörningurinn tekur um 20 mínútur.
Öll velkomin og aðgangur er ókeypis.
Hvar: Bókasafn Reykjanesbæjar | Miðjan
Hvenær: 31. ágúst kl. 17.00
Eyrún Ósk Jónsdóttir á að baki feril sem rithöfundur, leikari og friðarsinni.
Akeem Richard er þekktur hér á landi fyrir þátttöku sína úr stjórnmálum, menningarviðburðum, fjölmenningarviðburðum og fyrir störf sín í þágu fjölmenningar.