Álfabækur

Álfabækur

Rithöfundurinn og myndlistarmaðurinn GARASON (Guðlaugur Arason) sýnir myndverkin sín Álfabækur í Bókasafni Reykjanesbæjar. Myndverkin krefjast þess að áhorfandinn gefi sér góðan tíma til að skoða verkin en í hverju þeirra leynist lítill verndarálfur.

Guðlaugur gaf út sína fyrstu skáldsögu 25 ára gamall og síðan þá hafa komið út skáldsögur, leikrit, ljóð og fleira eftir hann. Verk hans hafa notið vinsælda og verið verðlaunuð. Sýningin höfðar til allra aldurshópa og verður opin í 6 vikur frá opnun. 

 

Getraun

 

Í tilefni sýningarinnar verður getraun í Bókasafninu. Gestir skrifa á miða hve margar
álfabækurnar eru sem eru í sýningunni. Sá eða sú sem giskar næst réttu tölunni
hlýtur verðlaun frá Bókasafni Reykjanesbæjar.