Notaleg sögustund með Höllu Karen: Dýrin í Hálsaskógi

Laugardaginn 25. maí kl. 11.30 er Notaleg sögustund með Höllu Karen.

Að þessu sinni syngur Halla Karen og segir sögur úr Dýrunum í Hálsaskógi.

-----------------

Sögustundir Höllu Karenar hafa notið mikilla vinsælda meðal yngstu kynslóðarinnar og er hún á dagskrá í bókasafninu síðasta laugardag hvers mánaðar. Tilvalin samverustund fyrir alla fjölskylduna. 

Tilboð á Ráðhúskaffi fyrir börn - 1/2 panini og safi/kókómjólk á 500 kr