Námskeið um Völuspá og fleiri kvæði

Námskeið úr Völuspá og fleiri kvæðum fer fram í Bókasafni Reykjanesbæjar
þriðjudagana 5. október til og með 26. október kl. 19:30 - 21:30, alls 4 skipti. 

Þorvaldur Sigurðsson bókmennta- og íslenskufræðingur stýrir námskeiðinu en hann hefur haldið svipuð námskeið um Íslendingasögurnar undanfarin ár í bókasafninu. 

 

 Öllum sóttvarnarreglum verður að sjálfsögðu fylgt í hvívetna og spritt, grímur og hanskar verða í boði fyrir alla. 

 

Verð: 4000 kr - kaffi og meðlæti innifalið. 

 

Mikilvægt er að skrá sig - með því að smella hér eða skrifa nafn sitt í afgreiðslu safnsins.