Ljósmyndasýning Hjálmars Árnasonar
Skessukatlar myndast í ám með hringiðum. Katlarnir geta tekið á sig ótrúlegustu myndir. Þessir eru allir á um 20 fermetra svæði við Flekkudalsá í Dölum. Myndirnar voru teknar á u.þ.b. einni klukkustund.