REYNIR KATRÍNAR, GALDRAMEISTARI OG SKAPANDI LISTAMAÐUR

Ein af Ljósanætursýningum ársins í Duus Safnahúsum er sýning Reynis Katrínar, galdrameistara og skapandi listamanns. Andleg málefni hafa alla tíð átt huga og hjarta Reynis og bera verk hans þess sterk merki. Reynir sem hefur stundað hugleiðslu um árabil segir frá því að í gegnum hugleiðsluna hafi hann m.a. kynnst ljósverum og litríkum heimi þeirra. Reynir velur að vinna einungis með náttúruleg efni, þ.e. steina, rekavið, ull og egg temperu og notast við liti sem hann finnur í íslenskri náttúru. Reynir Katrínar verður með leiðsögn/spjall um sýninguna sunnudaginn 8.september kl.15:00 auk þess sem hann býður gestum upp á sérstaka spátíma sem verða auglýstir betur síðar.