Námskeið um Laxdælu

Laxdæla saga

Þorvaldur Sigurðsson bókmennta- og íslenskufræðingur stýrir námskeiði um Laxdælu sögu í Bókasafni Reykjanesbæjar. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 7. febrúar klukkan 19.30 - 21.30. Námskeiðið verður í fimm skipti, síðasta skiptið verður þriðjudaginn 7. mars.

Verð: 5.000 kr,- og kaffi og meðlæti er innifalið í námskeiðisgjaldi.

Skráning fer fram í afgreiðslu Bókasafnsins, í gegnum netfangið bokasafn@reykjanesbaer.is eða í gegnum rafrænt eyðublað HÉR.